Kílómetrastaða flotans
– skönnuð af mælaborðinu

QR-miði á mælaborðið. Bílstjórinn skannar, slær inn km og starfsmannanúmer – og skráningin er komin í kerfið. Ekkert app, engin innskráning, engin notendaleyfi.

  • Í gang á 5 mínútum
  • Ekkert kort, engin binding
  • Virkar á öllum símum
  • Excel / Power BI útflutningur
Skanna → skrá
Miði eða 3D-prentuð plata

Svona virkar það

Engin þjálfun. Ef bílstjórinn kann að skanna QR-kóða þá kann hann að nota kerfið.

1

Skanna miðann á mælaborðinu

Hver bíll fær sinn QR-kóða. Síminn opnar síðu bílsins – engin innskráning, ekkert app.

2

Slá inn km og starfsmannanúmer

Síðasta staða sést strax. Starfsmannanúmerið er munað á símanum, verknúmer er valfrjálst.

3

Búið – skráningin er í kerfinu

Kerfið hafnar vitleysu (lægri staða en síðast, óþekkt starfsmannanúmer) og spyr „Er þetta rétt?“ ef stökkið er stórt.

4

Umsjónarmaður sér allt á einum stað

Yfirlit yfir flotann, flaggaðar skráningar, km á verk, CSV í Excel eða Power BI. Innskráning með Microsoft 365-reikningi fyrirtækisins – engin ný lykilorð. Skoða sýnishorn →

Prófaðu sjálf/ur – núna

Bæði bílstjórasíðan og umsjónarsíðan eru opnar sem sýnishorn með gervigögnum. Ekkert vistast.

Eiginleikar

Það sem þarf – og ekkert meira.

Verknúmer og km á verk

Bílstjóri skráir sama verknúmer við upphaf og lok verks. Kerfið reiknar ekna km á hvert verk og bíl – tilbúið til reikningsgerðar.

Sjálfvirk gæðavörn

Óþekkt starfsmannanúmer, lægri staða en síðast, óraunhæf stökk og tvískráningar eru stöðvaðar eða flaggaðar til yfirferðar.

Umsjónarsíða

Yfirlit, skráningar, verk, bílar og starfsmenn. Bæta við bíl, leiðrétta stöðu, gefa út nýjan QR-kóða, loka bíl.

Excel og Power BI

CSV-útflutningur með bílnúmeri, km, starfsmanni, verknúmeri og tíma. Beint í pivot-töflu eða mælaborð.

QR-miðar eða 3D-prentaðar plötur

Prenttilbúnir miðar fyrir hvern bíl – eða STL-skrár fyrir plötu sem þolir sól og þrif betur.

Ykkar gögn – hjá okkur eða í ykkar Azure

Hýst í Azure í Norður-Evrópu með gögn hvers fyrirtækis aðskilin, eða sett upp í ykkar eigin Azure-áskrift. Umsjón læst með Microsoft 365-innskráningu. Engir lyklar, engin utanaðkomandi þjónusta.

Hvers vegna ekki bara …

Berðu saman við það sem fyrirtæki nota í dag.

KmskráningAksturskubbur / GPSExcel eða blað í bílnumPower Apps
Vélbúnaður í bílEnginn – bara miðiKubbur + uppsetning í hverjum bílEnginnEnginn
NotendaleyfiEnginOft á hvern bílEnginÁ hvern notanda á mánuði
Bílstjóri þarf app / innskráninguNeiYfirleittNei
Villur stöðvaðar við innsláttJá (sjálfvirkt)NeiFer eftir útfærslu
Km á verkSjaldanHandvirktÞarf að smíða
KostnaðurFast mánaðargjald, engin leyfi3.000–6.000 kr. + kubburTími umsjónarmannsLeyfi + smíði

Þrjár leiðir – þið ráðið hvar kerfið býr

Sama kerfi, sömu eiginleikar. Munurinn er hver rekur það og hvar gögnin eru.

1 · Hýst hjá okkur

Byrjaðu í dag

Skráðu fyrirtækið með Microsoft 365-reikningi, bættu við bílum, prentaðu miða. Engin uppsetning, ekkert Azure, engin bið.

  • 90 daga frí prufa, ekkert kort
  • Mánaðargjald eftir fjölda bíla, ekkert uppsetningargjald
  • Uppfærslur og aðstoð innifalin
  • Gögn aðskilin, Azure Norður-Evrópa
Byrja frítt
2 · Í ykkar Azure

Við setjum upp hjá ykkur

Kerfið keyrir í Azure-áskrift fyrirtækisins – gögnin fara aldrei út fyrir hana. Við setjum upp á einum degi og sjáum um uppfærslur.

  • Uppsetningargjald + sama mánaðargjald
  • Umsjón með ykkar Entra ID
  • Fyrir fyrirtæki með eigin upplýsingatækni og kröfur um hýsingu
Fá tilboð
3 · Eigið kerfið

Kaupið hugbúnaðinn

Allur frumkóði, uppsetningarskriftur og skjölun afhent. Ykkar tæknifólk setur upp og rekur; engin tenging við okkur eftir það.

  • Eingreiðsla, ótímabundið leyfi
  • Valfrjáls þjónustusamningur
  • Ótakmarkaður fjöldi bíla
Fá tilboð

Fáðu tilboð fyrir ykkar flota

Segðu okkur hve margir bílar eru í flotanum. Tilboð með verði fyrir allar þrjár leiðirnar berst sjálfkrafa í tölvupósti innan 15 mínútna. Viltu bara byrja? Skráðu fyrirtækið – verðið sést líka þar.

  • Ekkert símtal, enginn sölumaður
  • Engin binding
  • Verð án notendaleyfa

Netfangið er eingöngu notað til að senda tilboðið og svara fyrirspurninni.

Spurt og svarað

Hvað kostar þetta?

Fast mánaðargjald sem fer eftir fjölda bíla – engin leyfi á starfsmenn eða notendur. Hýsta leiðin hefur ekkert uppsetningargjald og 90 daga fría prufu; í ykkar Azure bætist uppsetningargjald við; eigið kerfi er eingreiðsla. Sláðu inn fjölda bíla hér að ofan og nákvæmt tilboð berst í tölvupósti innan 15 mínútna.

Getur hver sem er skannað miðann og skráð vitleysu?

QR-kóðinn auðkennir bara bílinn og skilar aðeins bílnúmeri og síðustu stöðu. Skráning þarf gilt starfsmannanúmer, hafnað er lægri stöðu en síðast, og hámark er á fjölda skráninga á bíl og dag. Ef miði kemst í rangar hendur er gefinn út nýr kóði með einum smelli.

Dugar þetta sem akstursbók fyrir skattinn?

Kerfið er hugsað fyrir stöðu flotans, viðhald og km á verk. Starfsmaður auðkennir sig með númeri, ekki innskráningu. Ef þarf skjalfestingu fyrir hlunnindi eða skatt setjum við Entra-innskráningu fyrir framan bílstjórasíðuna – síðan sjálf breytist ekki.

Hvar eru gögnin geymd?

Hýsta leiðin: í Azure í Norður-Evrópu (Írland), gögn hvers fyrirtækis aðskilin, engir deililyklar, TLS 1.2, dulkóðað í hvíld. Þið getið sótt öll gögn sem CSV og eytt fyrirtækinu hvenær sem er; skilmálarnir innihalda vinnslusamning. Leiðir 2 og 3: í ykkar eigin Azure-áskrift.

Hvað ef síminn er ekki með netsamband í bílskúrnum?

Síðan er örlítil og opnast á sekúndubroti á 3G. Ef ekkert samband er þá er einfaldlega skráð næst þegar það kemur – kerfið sér um að staðan sé rétt í röð.

Þurfum við Power Platform, Dynamics eða önnur leyfi?

Nei. Kerfið er sjálfstætt Azure Function App, keyrt á notkunarmældu plani. Umsjónarsíðan notar Microsoft 365-reikninga sem þið eigið nú þegar.

Hve langan tíma tekur uppsetning?

Uppsetning í Azure tekur undir klukkustund. Með innlestri bíla og starfsmanna, prentun miða og kennslu er flotinn yfirleitt kominn í gang innan viku frá pöntun.